Hugarheimur Hörpu
bara svona smá
01.06.2006 23:25:28 / skarpa

Farvel

ég er farin

annað blogg

www.skorpust.blogspot.com

BLESS

Harpa

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 01:16:14 / skarpa

FRUMSÝNING 5. APRÍL



generallinn tókst vel
Frumsýning á morgun
ógó gaman
mæli eindregið með að fólk láti sjá sig
OG taki aðra með sér
söngur, dans, tár, bros, hlátur, grátur
plús ALLT sem ÞIG langar að sjá í skemmtó leikhúsi

WWW.STÚDENTALEIKHÚSIÐ.IS

Fyrir frekari upplýsingar á sýningartímum

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 18:21:11 / skarpa

bara svona eitthvað

ætlaði að blogga í matnum mínum í dag
er núna bara að bíða eftir Herði að sækja mig
semsagt búin í vinnunni
það vantar ekki framtakssemina hjá manni þessa dagana
sést best á stöðu mála í Skarphéðinsgötunni okkar Harðar
er bara á fullu í Stúdó
Frumsýning þann 5 apríl fyrir áhugasama
erum að gera alltsaman sjálf
ógillega gaman
held ég fari að kúpla mig útúr þessu blogcentrali
farnir að rukka og alltaf eikkað vesen á þeim
nennekki solleiðis braski
læt vita ef ég geri færslu á annað bloggsvæði
er að melta það........

Blessi ykkur
Harpan

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 22:18:05 / skarpa

hahahahahahaha snilld




The image “http://www.flashasylum.com/db/files/Comics/Rob/erection.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

vandræðalegt........

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 22:05:19 / skarpa

TIL HAMINGJU ÍSLAND........

með að Silvía Nótt fæddist hér og já fer í júróvision í vor
hlakka svo til að sjá það sjibbí

Búin að senda inn umsóknina í leiklistarnámið
jamm
það gekk brösuglega en gekk þó samt að lokum
þarf bara núna að finna mér mónólóga
hægara sagt en gert það verk
fórum á bókasafn og tókum nokkrar leikritabækur
sitjum yfir því núna
það er gaman
þyrfti samt að komast niður í BÍL
þar eru nebbla möppur með konu og kalla mónólógum
en þeir eru með svo kjánalega opnunartíma
bara í þrjá eða fjóra tíma á dag
og ég er alltaf að vinna
pínu fúlt, en við erum allavega byrjuð
gaman gaman

held samt ég fari að sofa bráðum
Harpan


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 14:17:33 / skarpa

vinnublogg

ætla alltaf að segja frá einhverjum skemmtó sögum og svoleiðis sem gerist í vinnunni en gleymi þeim alltaf jafnóðum, þyrfti að skrifa þær niður en gleymi því líka. Er bara á fullu að vinna og í leiklistinni og svo sef ég líka, já og puttarnir á mér eru einsog sandpappír og vantar að komast og búa ein með Herði, get ekki beðið eftir því

Er bara þreytt Harpan

vá hvað þetta var skemmtileg saga úr raunveruleikanum........

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 19:02:51 / skarpa

eitt ár í viðbót

já þá er maður bara búinn að bæta á sig einu árinu til viðbótar
 ekki slæmt það, 22 ár sem maður hefur þraukað.
Svo verður náttúrulega að halda uppá það að hafa verið
 hér á þessari blessuðu jörð í 22 ár
og verður það gert með viðeigandi hætti á skemmtistaðnum Prikinu í kvöld.
Ég og hún Bryndís höldum saman uppá samtals 44 ár (sjitt)
í góðra vinahópi og að sjálfsögðu með öl við hönd.
Það verður klikkað stöð á Hörpunni í kvöld

eitt stuðlag og myndband til að komast í gírinn
http://www.thesuperficial.com/archives/2006/01/26/david_hasselhoff_is_hooked_on.html

Gangið hægt um gleðinnar dyr
Harpan

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 02:26:49 / skarpa

Hæbb

var að taka til áðan
í skápnum mínum hérna heima
og setja niður í ferðatösku það sem ég hef ekki notað lengi
og get ekki notað sökum þess að ég er komin með örlítið "kvenlegri" vöxt
en fyrir fimm árum síðan.
En það er ekki punkturinn....
Fann nokkrar flíkur sem ég gæti huxað mér að nota síðar meir
þegar ég hef komið mér í form
t.d. einsog nokkra boli og pils
en svo aftur á móti fann ég nokkur
"tískuslys"
einsog oft er sagt.

Kannski ég ætti að stoppa hér
vera ekki að játa á mig þessa syndir
en þá væri þetta bara önnur tilgangslaus saga úr hversdagslífinu.
En já aftur að tískuslysunum
sum þeirra keypt önnur saumuð af sjálfri mér
og segir það sig nokkuð sjálft
ekki satt??
Fyrst glittir í nokkrar sokkabuxur
sem keyptar hafa verið afþví þær voru svo ýkt flippaðar og munstraðar
en sumar hafa nú staðist tímans tönn
Næst finn ég svo forlátar buxur sem keyptar voru í Frakklandi forðum daga
og ná utan um annað lærið á mér núna
(segir ýmislegt)
ekki kannski ljótar en litlar
Svo dreg ég fram hvítar blúndunærbuxur og korsilett á eftir
sælla minninga þegar sett var upp Drakúla í MS hér um árið,
þá þurfti ég að kaupa mér eitt stykki svoleiðis,
myndi nú ekki versla mér svoleiðis fatnað að gamni mínu
samt gaman að eiga eitt svoleiðis
Eftir korsilettsjokkið finn ég svona gult spánarsarong
sem mér finnst vera afar ófagrar flíkur,
fylgdi með einhverjum sandölum sem keyptir voru á Spáni
Svo gref ég upp úr dýpstu og dimmustu holum skápsins míns
kjól sem ég sjálf saumaði eftir öðrum kjól sem ég átti
sá kjóll var fallega rauðsanseraður á litinn,
en efnið sem ég notaði var síður en svo fallegt.......
....... Hlébarðamunstur.......
.......og svo var hann snípstuttur!!!!!
fann svo annan kjóll sem ég hafði notað sömu sniðaðferðir við
nema í hann voru notaðar restar úr gardínum
sem voru í herberginu mínu.

doltið gaman að gramsa svona í gömlu dóti
en segjum bara að ég hafi verið að þroskast
...og þá er málið dautt!!!!!

Annars bara allt fínt að frétta
Harpan

» 6 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 15:34:51 / skarpa

fyrsta afborgun ekki á morgun heldur hinn

þá er maður búinn að troða sér á þetta blessaða myspace
sem allir eru að missa vatn yfir vegna það er svo kúl að vera þar.
Þetta er samt nú alveg sniðugt en kíkið allavega á
þetta

Sossum ekki mikið meira að frétta
sit núna í vinnunni í mat
mætti alveg vera hressara
er að stressa mig yfir kvöldinu
er nebbla búin að vinna klukkan sjö
og það byrjar leiklistaræfing líka klukkan sjö
þannig að ég þarf að stresskastast þegar ég er búin að vinna á æfingu
ekki það skemmtilegasta sem ég geri

að flýta mér.....


Hurru bara óverendát....... Harpan

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 00:37:21 / skarpa

langt síðan síðast

Jæja það er loksins að ég læt heyra í mér, er bara búin að vera að vinna á fullu  og er mikið þreytt þessa dagana. Allt að gerast líka á Skarphéðinsgötunni þurfum að fá pípara og þurfum kannski að láta skipta um allar lagnir:$  Svo er ég búin að vera hálf veik yfir helgina, leiðindi í maganum og hausverk, held það sé þetta rugl sem er alltaf á manni óreglulegur svefn og svoleiðis, en mér er batnað:D

Svo var Stúdófundur á fimmtudaginn og það verður spennandi að sjá hvað við gerum þar svo eru líka inntökuprófin í lhí að nálgast og ég á eftir að gera upp við mig hvort ég eigi að demba mér í þau!!!!8|

Svo eru Katrín og Gugga búnar að panta ferð til Mallorca og langara mig sjúklega til að fara með þeim en það kostar svo mikinn pening og við vorum náttúrulega að kaupa okkur íbúð sem kostar sitt og svo er Hörður að hóta því að ef ég fer með stelpunum að þá fari hann á Hróarskeldu:evil: er ekki alveg par hrifin af því, vegna þess að mig langar líka þangað og við höfum hvorugt farið og það væri gaman að fara saman í fyrsta skipti.

Þannig að ég er í miklum ákvarðanatökum þessa dagana. sem mér finnst erfitt og leiðinlegt eiginlega bara.

það var ekki meira í bili

Harpan

p.s. ég á ammæli bráðum


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.12.2005 14:49:35 / skarpa

jæja jæja jólin erað koma


jólin bara á morgun og það á eftir að sparsla í nokkrar jólagjafaglufur:$
smá stress

Svo erum við búin að fá afhent og búin að flytja allt stóra dótið heiman frá Herði svo að það sé hægt að halda jólaboð heima hjá honum,
er ekki alveg sátt með það afþví að það á eftir að gera smá framkvæmdir og finnst mér beinlínis verið að reka okkur út......
.......usssss ekki segja honum

Það er svosum ekki mikið meira að frétta annað
bara
GLEÐILEG JÓL ALLIR SAMAN
og hafið það sem best yfir hátíðirnar

Harpan í góðu skapi:haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 12:54:01 / skarpa

Féttir

Við erum búin að heyra í fasteignasalanum:$

Hann hringdi í morgun klukkan 10:25 og sagði að þau væru að leita eftir hærra tilboði:cry: spurði hvort við værum tilbúin að bjóða hærra, Hörður sagði nei og stóð fastur á því. Fasteignasalinn sagði að þau hefðu gert gagntilboð til hins gaursins sem gerði tilboð. Hann tók því ekki!!

Svo hringir fasteignasalinn aftur 11:58 (tvem mínútum áður en tilboðið okkar rann út) og segir

ÞAU SAMÞYKKTU!!!!!!!!!!!!!

Við erum sem sagt að fara í bankann núna, það segir ýmislegt (lán) við erum sem sagt hugsanlega að fara að flytja að heiman

Harpan bráðum nýflutta


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 04:11:48 / skarpa

Krúttlegt eða hvað???

Er að horfa á nýja Sigurrósar mynbandið við Hoppipolla og eeeennn hvað það er krúttlegt
Ömmur og afar í allskonar krakkaleikjum, stríð á milli gengja, dyrabjölluat og hoppað í polla

mjög skemmtilegt

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 14:50:57 / skarpa

PLEHH

svaf í fimm tíma í nótt
búin að langa að borða í allan dag
er samt illt í maganum
og það er ekkert gasalega gott að borða
skelf í hnjánum
þarf að hringja í einhvern
veit ekki alveg hvern
er að bíða eftir símtali frá Herði
með STEIN í maganum
og hnút í hálsinum


já það getur tekið á að gera tilboð í íbúð..........

meira síðar!!!!!!!

Harpan í tilfinningahrúgu

» 5 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 01:43:59 / skarpa

Þjóðhátíð og skemmtileg heit

komnar inn Þjóðhátíðarmyndir
góða skemmtun
:haha:

Það var sko gaman ekki satt? JÚÚÚÚ


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12